Hefur þú hrósað barninu þínu í dag?
Útvistartími

12 ára og yngri- mega ekki vera á almannafæri nema í fylgd með fullorðnum eftir kl. 20 á veturna.

 

13 - 16 ára mega ekki vera á almannafæri eftir kl. 22 á veturna nema á heimleið frá skóla-, íþrótta- eða æskulýðs- samkomu. Útvistartíminn lengist um tvær stundir á sumrin. (1.maí - 1.sept.)

17. janúar 2012

Tilkynning frá www.mss.is Miðstoð Símenntunar á Suðurnesjum

Þetta námskeið á erindi til allra skólaforeldra sem vilja setja sér markmið.

--------

Á nýju ári er gott að horfa fram á veginn og gera áætlanir um hvernig maður vill haga hlutunum. Okkur finnst eðlilegt að gera áætlanir um ýmislegt og má þar nefna  ferðaáætlanir áður en við höldum af stað í ferðalag, greiðsluáætlanir í byrjun árs til að dreifa álaginu í peningamálum, námsáætlanir í byrjun náms osfrv.


Staðreyndin er hins vega sú að það eru tiltölulega fáir sem gera skýr og greinileg markmið um hvernig manneskjur þeir vilja vera eða hvert þeir vilja stefna í lífinu almennt. Markmið  varðandi fjölskylduna, heilsuna og heilbrigði, sjálfsþroska og frama á einhverju sviði eru mikilvæg vilji maður ná árangri.

Það er staðreynd að fólk sem setur sér skrifleg markmið nær betri árangri og á skemmri tíma en þeir sem hafa óljósa hugmynd um það sem þeir vilja. Með því að setja sér markmið og hefja þá vinnu sem fylgir því að ná þeim opnast oft margar aðrar leiðir og tækifæri sem viðkomandi dreymdi ekki um áður. Þetta snýst um að vera ökumaður í eigin lífi en ekki farþegi í lífi annarra.


MSS hefur ákveðið að bjóða upp á ókeypis námskeið í markmiðasetningu í janúar. Námskeiðið er ein kvöldstund og þátttakendur fá verkefnahefti sem þeir vinna að hluta til á námskeiðinu.

Ef þú kæri lesandi hefur áhuga á að koma á námskeið í markmiðasetningu og setja þér markmið fyrir árið 2012 þá getur þú skráð þig inni á vefsíðu okkar www.mss.is . Námskeiðið verður haldið í húsnæði MSS, Krossmóa 4a þann 30. janúar og hefst kl.19.30 og er í u.þ.b. tvær klukkustundir. Það er Anna Lóa Ólafsdóttir náms- og starfsráðgjafi sem er leiðbeinandi á námskeiðinu. Mikilvægt að skrá sig!


MSS vill einnig minna á að hjá MSS eru náms- og starfsráðgjafar sem aðstoða einstaklinga sem vita ekki alveg hvað þeir vilja en vita samt að þeim langar til að gera eitthvað. Alltaf hægt að panta tíma og er þjónustan ókeypis.

...Meira
17. janúar 2012
Kynning á nýrri reglugerð um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum

Þriðjudaginn 17. janúar nk. munu Suðurnesjavaktin, FFGÍR (Foreldrafélög grunnskólanna í Reykjanesbæ) og fræðsluskrifstofur á Suðurnesjum standa fyrir kynningu á nýrri reglugerð um ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í grunnskólum. Guðni Olgeirsson sérfræðingur í menntamálaráðaneytinu mun kynna og svara spurningum um reglugerðina en hún tekur til fjölmargra atriða er varða grunnskólastarfið.
Lögð er sérstök áhersla á skólabrag, agamál, eineltismál, ábyrgð og skyldur aðila skólasamfélagsins í þeim efnum og málsmeðferð í skólum þegar misbrestur verður á tilteknum atriðum.

Reglugerðin er afar mikilvægur áfangi en síðustu misseri hefur verið unnið að gerð heildstæðrar reglugerðar í samráði við hagsmunaaðila og er í anda þeirrar stefnumótunar sem hefur farið fram um velferð nemenda.

Kynningin verður haldin í sal Fjölbrautaskóla Suðurnesja klukkan 17.30 - 18.30.

...Meira
16. nóvember 2011
Föstudaginn 18. nóvember næstkomandi verður haldið fulltrúaráðsþing Heimilis og skóla og Foreldradagurinn 2011. Um er að ræða málþing Heimilis og skóla um foreldrafærni. Fulltrúaráðið mun funda um morguninn en málþingið hefst kl.12:30.

Landslið fyrirlesara ræðir foreldrafærni: Steinunn Bergmann, Gylfi Jón Gylfason og Hugo Þórisson. Sigrún Júlísdóttir verður í sófaspjalli ásamt fyrirlesurum. Fjórar hagnýtar vinnustofur eftir kaffihlé. Þetta er viðburður sem þið viljið ekki missa af!

Foreldradagurinn er málþing Heimilis og skóla - landssamtaka foreldra, ætlað foreldrum og öðrum áhugasömum um uppeldi barna. Markmiðið er að veita hagnýtar upplýsingar um uppeldisaðferðir og hvatt verður til umræðu um foreldrafærni og að foreldrar ígrundi foreldrahlutverkið. Á dagskrá eru reynslumiklir fyrirlesarar og hægt verður að velja hagnýta vinnustofu. Í hléi verður boðið upp á markaðstorg þar sem ýmsir aðilar kynna þjónustu sem nýst getur foreldrum og öðrum uppalendum. Nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu Heimilis og skóla og í meðfylgjandi auglýsingu.

Áhugasamir skrái sig hér á vefsíðu Heimilis og skóla. ...Meira
8. nóvember 2011
FFGÍR hvetur alla til að skrifa undir sáttmálann gegn einelti http://gegneinelti.is/. ...Meira
8. nóvember 2011

Verkefnisstjórn í aðgerðum gegn einelti hefur ákveðið að standa að sérstökum Degi gegn einelti 8. nóvember 2011.

Í tilefni dagsins verður undirritaður þjóðarsáttmáli um jákvæð samskipti. Forsætisráðherra er verndari átaksins og munu velferðarráðherra, fjármálaráðherra og mennta- og menningarmálaráðherra undirrita sáttmálann fyrir hönd ríkisstjórnarinnar. Ennfremur eru fjöldi félaga og samtaka aðilar að samningnum.

Einelti spyr ekki um aldur, þjóðfélagshópa eða kyn og það þrífst einfaldlega alls staðar þar sem það er látið viðgangast. Ábyrgð okkar allra er því mikil og það er í okkar höndum að vinna bug á þessu þjóðfélagsmeini. Það er ekki flókið ef allir taka höndum saman og sannmælast um ákveðna sátt, þjóðarsáttmála um jákvæð samskipti.
Í tilefni af baráttudegi gegn einelti þann 8. nóvember verður opnuð heimasíðan www.gegneinelti.is og þar gefst fólki kostur á að undirrita eftirfarandi sáttmála:

Þjóðarsáttmáli um baráttu gegn einelti
Við undirrituð skuldbindum okkur til þess að vinna af alefli og einurð gegn einelti í samfélagi okkar. Við munum standa vörð um rétt fólks til þess að lifa í sátt og samlyndi við umhverfi sitt. Við munum sérstaklega gæta réttar barna og ungmenna sem og allra hópa sem eiga sér hvorki málsvara né sterka rödd. Við munum öll, hvert á okkar sviði, skuldbinda okkur til að hafa áhrif til góðs á nánasta umhverfi okkar. Við ætlum að vera góð fyrirmynd og leggja okkar af mörkum til að vinna bug á því samfélagslega böli sem einelti er.

Verkefnastjórnin hvetur alla þá fjölmörgu aðila og samtök, sem starfa á þeim vettvangi sem átakið nær til, til þess að taka höndum saman og helga 8. nóvember nk. baráttunni gegn einelti. Sérstaklega er þessu beint til leikskóla, grunn- og framhaldsskóla, félags- og frístundamiðstöðva, auk vinnustaða og stofnana. Ýmislegt er að hægt að gera í tilefni dagsins, s.s. að halda upp á hann með táknrænum hætti eða beina umræðunni að einelti og afleiðingum þess í samfélaginu.

Verkefnisstjórnin vonast til að sem flestir í samfélaginu skrifi undir þjóðarsáttmálann og taki þátt í því að setja umræðuna um einelti í brennidepil þennan dag – málefnið er brýnt og til mikils að vinna ef í sameiningu tekst að koma á þjóðarsáttmála um jákvæð og uppbyggileg samskipti.

F.h. Verkefnastjórnar um aðgerðir gegn einelti
Árni Guðmundsson verkefnastjóri

...Meira
8. nóvember 2011

Þær sem unnu bingóvinning á námskeiði FFGÍR þann 3.nóv. sl. vinsamlega hafið samband á netfangið ffgir@ffgir.is. Vinningurinn bíður ykkar.

 

...Meira
8. nóvember 2011

Gerum betur – námskeið fyrir bekkjarfulltrúa var haldið í Njarðvíkurskóla. 3.nóvember 2011.

Það mættu tæplega 60 fulltrúar á námskeiðið sem var örnámskeið um hlutverk bekkjarfulltrúa í skólastarfi.

Á námskeiðinu fjallaði Helga Margrét Guðmundsdóttir um hlutverk bekkjarfulltrúa, samtakamátt foreldra og mikilvægi þess að vita hverjar boðleiðirnar eru í samstarfi heimilis og skóla. Í lok námskeiðs var þátttakendum skipt í hópa til að ræða hvernig má efla þátttöku foreldra almennt í skólastarfi.

Á fundinum kom fram að það er margt gott í samstarfi heimilis og skóla í Reykjanesbæ en ýmislegt má gera betur.
Hóparnir voru sammála um að varðandi boðunarleiðir þá ættu forsvarsmenn foreldrafélaganna að hringja út í foreldra til að boða á foreldrafundi. Draumur þátttakenda var m.a. að fá 100% mætingu foreldra á  foreldrafundi. Foreldrafundir eru mikilvægir hvort sem er fyrir yngstu eða elstu nemenduna. 

Hugmynd kom upp að fá skemmtilegan gest á foreldrafund. Einnig komu ábendingar að nauðsynlegt væri að foreldrafélögin hugsi út fyrir rammann. Það þarf að gera allt til að fá foreldra saman, baka, bjóða heim eða jafnvel að funda annarsstaðar en í skólanum. Fyrir fundi þarf að setja upp dagskrá fundarins og hringja í foreldra til að boða á fund.

Það er hægt að vekja áhuga foreldra á ýmsa vegu. Það er líka hægt að senda könnun á foreldra til að athuga hvað foreldrar vilja fá út út foreldrastarfi.
Fundurinn var sammála um að jákvætt viðhorf til skólans og náms væri lykilatriði í samstarfi heimilis og skóla.

Foreldrar þurfa að „þekkja“ kennarann. Foreldrar geta auðveldlega myndað tengslanet þar sem t.d. yrði veitt aðstoð við heimanám.
Foreldrar ættu að hlusta á börnin sín og annarra!
Foreldrar þurfa að aðstoða við að efla tengsl milli barna t.d. með vinahópum því það getur bætt líðan nemenda.
Foreldrar þurfa að þekkja deili á vinum/ skólasystkinum barnsins.
Góður grunnur barna úr grunnskóla stuðla að minni líkum á brottfalli úr framhaldsskóla.






 

...Meira
27. október 2011

FFGÍR boðar alla bekkjarfulltrúa Háaleitis-, Njarðvíkur-, Holta-, Heiðar-, Myllubakka-, og Akurskóla á námskeið.
Námskeiðið verður haldið fimmtudaginn 3.nóvember 2011 kl.19:30 til 21:30  á sal í Njarðvikurskóla.

Á námskeiðinu verður farið yfir hlutverk og ábyrgð bekkjarfulltrúa. Helga Margrét mun ræða málin út frá HANDBÓK Heimilis og skóla. Fjallað verður um ávinninginn af samstarfi foreldra og hvernig hægt er að virkja fleiri foreldra.

Námskeiðið byggist upp á hvatningu og umræðum um hvað er gott og hvað má bæta í starfi foreldra innan skólans. Helga Margrét Guðmundsdóttir, félags- og tómstundafræðingur, er sjálfstætt starfandi ráðgjafi sem hefur mikla reynslu af samstarfi heimilis og skóla.

Þeir foreldrar sem hafa sótt námskeið Helgu Margrétar hafa verið á einum rómi um að námskeiðin séu bæði gagnleg og skemmtileg.

 

Námskeiðið er eingöngu fyrir stjórnir foreldrafélaganna og bekkjarfulltrúa allra árganga.

...Meira
17. október 2011

 Vika 43, vímuvarnavikan, verður 23. – 30. október í ár en þetta er 8. árið sem þessi vika er tileinkuð vímuvörnum. Vika 43 er vettvangur félagasamtaka sem hafa forvarnir að markmiði starfs síns eða vilja leggja vímuvörnum lið, til þess að vekja athygli á forvarnastarfi og áfengis- og vímuefnamálum; varpa ljósi á viðfangsefni forvarna og kynna sérstaklega starf sem unnið er á vettvangi félagasamtaka; vekja athygli landsmanna á mikilvægi forvarna, einkum forvörnum gagnvart börnum og unglingum og; virkja þekkingu, styrk og samstöðu grasrótarsamstarfs til eflingar forvarnastarfs.

Að þessu sinni er í viku 43 athygli beint að rétti barna og ungmenna til vímulauss lífs og verndun þeirra gegn neikvæðum áhrifum neyslu áfengis og annarra vímuefna, eins og mælst er til í yfirlýsingu aðildarríkja Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar frá árinu 2001 og barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna. Þennan rétt barna þarf að verja með ýmsum hætti og í vikunni verður kastljósi beint að því í hverju þessi réttur felst og hvernig Íslendingar standa sig hvað þetta varðar.

Eftirfarandi samtök eru þátttakendur í VIKU 43 árið 2011:

Barnahreyfing IOGT, Biskupstofa, Brautin - bindindisfélag ökumanna, FÍÆT – félag Íslenskra æskulýðs- og tómstundafulltrúa, Heimili og skóli, IOGT á Íslandi, ÍSÍ, 0%-samtökin, KFUM-K, Krabbameinsfélag Reykjavíkur, Kvenfélagasamband Íslands, LIONS hreyfingin, Samstarfsráð um forvarnir SAMFO, SAMFÉS, Samtök foreldra gegn áfengisauglýsingum, Samtök skólamanna um bindindisfræðslu SSB, Skátarnir, UMFÍ, VÍMULAUS ÆSKA – Foreldrahús, Vernd – fangahjálp.

Heimasíða Viku 43 er www.vvv.is


[1] http://www.euro.who.int/__data/assets/pdf_file/0011/88589/E73074.pdf
[2] http://www2.ohchr.org/english/law/crc.htm#art33


 

 

...Meira
14. október 2011

Samræmd könnunarpróf fóru fram  19. - 23. september. Annað árið í röð bauð Foreldrafélagið í Holtaskóla nemendum í morgunmat fyrir prófin (rúnstykki og safa).  Morgunmatur hófst kl. 08:30 og áttu nemendur góða stund saman fyrir prófin.

Þessi hugmynd gæti verið öðrum foreldrafélögum til eftirbreytni. Það er alltaf gaman þegar nemendum er komið á óvart á skemmtilegan hátt.

 

...Meira
3. október 2011
Við viljum vekja athygli ykkar á fræðslu til foreldra sem kallast BARA GRAS og er fimmtudaginn 6.október í íþrótta Akademíunni í Reykjanesbæ kl.17:30 til 19:00.
Dagskrá:
Lögreglan á Suðurnesjum fjallar um ástand fíkniefnamála.
Erlingur frá Lundi kynnir starfsemi Lundar.
Logi Geirsson handboltakappi fjallar um mikilvægi þess að velja rétta leið í lífinu.

...Meira
26. september 2011

 "Dagur gegn einelti"  verður þriðjudaginn 27. september í Njarðvíkurskóla.

Þá vinna allir nemendur skólans að forvarnarverkefnum gegn einelti með sínum umsjónarkennara og öðrum starfsmönnum.  Ætlunin er að fara yfir og kenna nemendum forvarnarkerfi sem nefnist Stöndum saman þar sem unnið er eftir hugmyndafræði PBS um að kenna nemendum og þjálfa þá í aðstæðum. 

Farið verður yfir hvernig nemendur bregðast við áreiti frá öðrum og setja sig í spor þolenda, gerenda og áhorfenda og æfð viðbrögð í öllum þessum hlutverkum. 

Einnig er ætlunin að styrkja nemendur í að segja frá og að það er ekki það sama að segja frá og klaga. 

Foreldrar eru hvattir til að ræða um einelti við sín börn heima og láta umsjónarkennara strax vita sé grunur um einelti.

 


 

...Meira
25. september 2011
Við hjá FFGÍR leggjum áherslu á að vera málsvari foreldra í grunnskólasamfélaginu. Við vijlum vekja athygli á að símatími FFGÍR er alla daga frá 16:00 til 17:00. Netfang FFGÍR er ffgir@ffgir.is . Það er ábyrgð okkar að fylgjast með námi og líðan barnanna og fá aðstoð og ráðleggingar ef eitthvað er óljóst.
Stöndum vörð um gott skólastarf, börnunum til heilla og árangurs.  Leggjum metnað i að vita alltaf hvað börnin eru að aðhafast í skólanum. Það er auðvelt að vera í samskiptum við kennara barnsins með því að senda tölvupóst og hringja eða mæta í formleg foreldraviðtöl. Foreldrasamfélagið á að styðja við kennsluna og námið hjá börnunum. Skólinn er ekki geymslustaður fyrir börnin okkar, hann er menntastofnun þar sem börnin fá fræðslu til að undirbúa sig undir lífið.
Sameinuð gerum við kraftaverk!
Ég vil þakka þeim fjölmörgu sem halda utan um foreldrastarf hvers skóla í Reykjanesbæ. Allt er þetta unnið í sjálfboðastarfi. Það er aðdáunarvert að sjá hversu margir eru virkir í foreldrastarfi  í Reykjanesbæ. Bekkjarfundir eru nú að fara af stað út um allan bæ. Bekkjarfulltrúar hafa fundað og lagt línurnar fyrir veturinn í samráði við FFGÍR og stjórnir foreldrafélaganna í hverjum skóla.
Við verðum með formlegt námskeið fyrir bekkjarfulltrúa allra skóla í lok október eða byrjun nóvember. Það verður nánar auglýst síðar.
...Meira
25. september 2011

FFGÍR hefur sl. tvö ár gefið nemendum í 1. bekk 2010 og 1. og 2.bekk 2009 endurskinsvesti að gjöf. Tilgangurinn með gjöfinni var að börnin yrðu sýnilegri í umferðinni á leið í og úr skóla.

Nú er komið að því að meta hvort gjöfin okkar sé notuð og hvort börnin sem eru núna í 1.bekk ættu að fá vesti að gjöf frá FFGÍR og samstarfsaðila.

Okkur þætti því gott að fá athugasemdir og ábendingar um gjöfina og hvort við ættum að breyta einhverju í því sambandi. Sendið póst á ffgir@ffgir.is með gagnlegum athugasemdum.

Við viljum jafnframt minna börn og foreldra á að nota vestin nú þegar skammdegið hellist yfir. Vestin voru merkt hverju barni og þau fengu fræðslu um hvernig best væri að nota þau.  Það er mikilvægt að börnin séu alltaf sýnileg í umferðinni hvort sem þau eru gangandi á leið í og úr skóla eða tómstundum.

Þeir sem eiga vesti sem eru ónotuð og engum til gagns eru beðin um að koma þeim til kennara eða ritara hvers skóla sem tekur við þeim fyrir hönd FFGÍR.

 

 

 

 

...Meira
19. september 2011
Ágæti bekkjarfulltrúi í Reykjanesbæ
Þú hefur tekið að þér það mikilvæga hlutverk að vera bekkjarfulltrúi og færum við þér þakkir fyrir það.
Við skólann þinn starfar foreldrafélag samkvæmt lögum. Stjórn þess skráir nöfn allra bekkjarfulltrúa í skólanum og heldur þeim til haga. Þú sem bekkjarfulltrúi ert formlegur tengiliður foreldra við foreldrafélagið.
Hlutverk bekkjarfulltrúans:
Við gerum ráð fyrir að þú sért bekkjarfulltrúi ásamt fleirum í þínum bekk. Það er misjafnt hvað bekkjarfulltrúar eru virkir að boða til fundar eða halda bekkjarkvöld. Við hvetjum þig til að halda a.m.k. eitt fyrir jól og annað eftir jól. Það er mjög gott að hafa foreldrafund á sama tíma og bekkjarkvöldið og á sama stað að sjálfsögðu.
Bekkjarfulltrúi dregur vagninn í foreldrasamstarfi. Hann skipuleggur fundi og foreldrastarf vetrarins með foreldrum og deilir verkefnum. Hann kallar saman foreldra barnanna í bekknum helst tvisvar á ári. Þá ræða foreldrar um: foreldrasáttmála sem Heimili og skóli gefur út, líðan nemenda í skólanum, bekkjarandann, félagslíf nemenda og um skólastarfið almennt. Bekkjarfulltrúi hefur yfirleitt aðgang að skólanum fyrir fundi eða skemmtikvöld en það er mjög misjafnt. Þú skalt komast að því hvernig því er háttað í þínum skóla.
Bekkjarfulltrúi hlustar eftir sjónarmiðum nemenda varðandi bekkjarstarf og bekkjaranda (miðstig og unglingastig) og leyfir þeim jafnvel að taka þátt í einum foreldrafundi. Umsjónarkennari getur rætt við börnin um hvað þau vilja sjálf og komið skilaboðum til bekkjarfulltrúans. Bekkjarfulltrúi  aðstoðar foreldra við að stofna vinahópa fyrir nemendur ef áhugi foreldra er fyrir hendi.
Bekkjarfulltrúar eiga ekki samkvæmt neinum lögum að vera með bekkjarkvöld. Það hefur hinsvegar verið vilji foreldra að standa saman að bekkjarkvöldi fyrir nemendur. Mjög mismunandi útfærslur eru af bekkjarkvöldum. Það er gott að leita í handbók Heimilis og skóla eða foreldrabankann eftir hugmyndum (sjá á heimasíðu Heimilis og skóla).
Umsjónarkennari biður foreldra um aðstoð í vettvangsferðir, bekkjarkvöld eða að koma í skólann og kynna störf sín. Þá er gott að vera með lista yfir hvaða foreldrar hafa tök á því að koma í heimsókn vegna vinnu sinnar. Það er líka nauðsynlegt að vita hvaða foreldrar geta alls ekki tekið þátt í skipulögðu foreldrasamstarfi. Bekkjarfulltrúinn þekkir  jafnvel foreldrahópinn betur en kennarinn. Kennarar stóla oft á bekkjarfulltrúann og leyta álits þeirra ef eitthvað stendur til.
Foreldrar geta starfað mikið saman og verið með ýmis áform án vitundar umsjónarkennarans. Þeir halda skemmtikvöl