Hefur þú hrósað barninu þínu í dag?
Útvistartími

12 ára og yngri- mega ekki vera á almannafæri nema í fylgd með fullorðnum eftir kl. 20 á veturna.

 

13 - 16 ára mega ekki vera á almannafæri eftir kl. 22 á veturna nema á heimleið frá skóla-, íþrótta- eða æskulýðs- samkomu. Útvistartíminn lengist um tvær stundir á sumrin. (1.maí - 1.sept.)

FFGÍR eru regnhlífarsamtök foreldrafélaga grunnskólanna í Reykjanesbæ. Skólarnir eru Akurskóli, Heiðarskól, Holtaskóli, Myllubakkaskóli, Njarðvíkurskóli og Háaleitisskóli.

FFGÍR er vettvangur þar sem foreldrafélögin setja fram stefnumið sín og vinna saman að ýmsum málum. FFGÍR er málsvari foreldra grunnskólabarna í bæjarfélaginu og gefur umsagnir um ýmis málefni sem þá varðar.

Öll verkefni FFGÍR eru forvarnarverkefni.

Markmið FFGÍR eru að:


EFLA SAMSTARF FORELDRA
EFLA SAMSTARF HEIMILA OG SKÓLA
VERA MÁLSVARI FORELDRA

Í stjórn FFGÍR sitja tveir fulltrúar hvers foreldrafélags, fulltrúar foreldra úr skólaráðum og formaður FFGÍR. Verkefnastjóri FFGÍR situr alla stjórnarfundi.

FFGÍR-Félag foreldrafélaga grunnskólanna í Reykjanesbæ | www.ffgir.is | ffgir@ffgir.is