Félag foreldrafélaga grunnskólanna í Reykjanesbæ
1. gr.
Samtökin heita FFGÍR-Foreldrafélög grunnskólanna í Reykjanesbæ. Heimili þeirra og varnarþing er í Reykjanesbæ.
2. gr
Markmið samtakanna eru:
a. Að standa vörð um réttindi barna til menntunar og þroska.
b. Að efla samstarf foreldra og skóla.
c. Að efla samstarf aðildarfélaganna og annast sameiginleg verkefni.
d. Að vera sameiginlegur málsvari foreldra grunnskólabarna í bæjarfélaginu m.a. gagnvart stjórnvöldum og gefa umsögn um ýmis málefni er þá varðar.
3. gr.
Markmiðum þessum hyggjast samtökin ná m.a. með því að:
a. Að styðja við starf foreldrafélaga, með fræðslu og miðlun upplýsinga.
b. Að stuðla að aukinni umræðu um skóla- og uppeldismál, m.a. með námskeiðum, félagsfundum, málþingum, ráðstefnum, greinaskrifum og myndun starfshópa.
c. Að starfa með öðrum samtökum, stofnunum og félögum, sem sinna málefnum barna og foreldra á Íslandi og í nálægum löndum.
4. gr.
Aðild að FFGÍR eiga foreldrafélög og skólaráð í grunnskólum Reykjanesbæjar. Í stjórn FFGÍR sitja tveir fulltrúar foreldrafélaga og fulltrúi foreldra í skólaráði í grunnskólum Reykjanesbæjar.
5. gr.
Aðalfundur skal haldinn fyrir lok skólaárs ár hvert og skal boðað til hans með minnst viku fyrirvara. Stjórnarmenn skulu boðaðir skriflega. Aðalfundur er löglegur ef löglega er til hans boðað. Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstöf og önnur mál. Allir stjórnarmenn foreldrafélaga og fulltrtúi foreldra í skólaráði grunnskóla í Reykjanesbæ eiga rétt á setu með málfrelsi og tillögurétti. Vægi atkvæða er eitt frá hverju foreldrafélagi og eitt frá hverju skólaráði. Einfaldur meirihluti ræður úrslitum mála, sbr. 8.grein.
6. gr.
Kjósa skal sérstaklega formann á aðalfundi, en stjórnin skiptir að öðru leyti með sér verkum. Kjörtímabil formanns eru tvö ár en annara stjórnarmanna er eitt ár. Skal formaður vera sjálfkrafa fulltrúi stjórnar í Fræðsluráði Reykjanesbæjar, og skipa einn úr stjórn til vara. Einnig skal kjósa tvo skoðunarmenn reikninga.
7. gr.
Aðalfundur og stjórn geta skipað starfshópa til að sinna sérstökum málum sem upp kunna að koma.
8. gr.
Lögum þessum verður aðeins breytt á aðalfundi með samþykki 2/3 atkvæðisbærra fundarmanna, enda hafi tillögur um lagabreytingar verið kynntar í fundarboði. Breytingatillögur verða að berast stjórn fyrir 20. apríl ár hvert.
9. gr.
Ákvörðun um slit félags verður tekin á aðalfundi með 2/3 meirihluta og renna eignir þess til annara félaga/félags sem starfa að þeim sömu eða svipuðu markmiðum og FFGÍR, skv. ákvörðun fráfarandi stjórnar FFGÍR.
Samþykkt af stjórn FFGÍR dags. 26. apríl 2005
Breytinga samþykkt af stjórn FFGÍR dags. 9.júní 2009.