FFGÍR eru regnhlífarsamtök foreldrafélaga grunnskólanna í Reykjanesbæ, Akurskóla, Heiðarskóla, Holtaskóla, Myllubakkaskóla, Njarðvíkurskóla og Háaleitisskóla.
FFGÍR er vettvangur þar sem foreldrafélögin setja fram stefnumið sín og vinna saman að ýmsum málum. FFGÍR er málsvari foreldra grunnskólabarna í bæjarfélaginu og gefur umsagnir um ýmis málefni sem þá varðar. Öll verkefni FFGÍR eru forvarnarverkefni.
Markmið FFGÍR eru að:
EFLA SAMSTARF FORELDRA
EFLA SAMSTARF HEIMILA OG SKÓLA
VERA MÁLSVARI FORELDRA
Í stjórn FFGÍR sitja tveir fulltrúar hvers foreldrafélags og fulltrúar foreldra í skólaráði. Verkefnastjóri FFGÍR situr alla stjórnarfundi.
FFGÍR fundar a.m.k. einu sinni í mánuði meðan á skólaárinu stendur. Verkefnastjóri boðar til funda með viku fyrirvara.
Stjórn FFGÍR skipar fulltrúa foreldra í fræðsluráð Reykjanesbæjar. Verkefnastjóri FFGÍR situr fundi fræðsluráðs.
FFGÍR leggur fram sameiginleg markmið foreldrasamtakanna í stefnumörkun forvarnarstefnu Reykjanesbæjar.
Samtökin vinna að sameiginlegum málefnum skóla í Reykjanesbæ og verkefnastjóri FFGÍR á sæti í Fulltrúaráði Heimilis og skóla, landssamtaka foreldra, og Samtakahópi, samstarfshópi ýmissa fagaðila í forvarnarmálum í Reykjanesbæ.
Formaður FFGÍR var í fyrsta sinn kosinn sérstaklega haustið 2003, Sóley Birgisdóttir gegndi því hlutverki fram að hausti 2005.
Samtökin hafa notið stuðnings Reykjanesbæjar. Samtökin hafa fengið styrk árlega frá árinu 2003 úr Manngildissjóði Reykjanesbæjar, einkum til að standa straum af launakostnaði verkefnastjóra í hlutastarfi og hefur sá stuðningur verið starfinu dýrmætur.
Núverandi verkefnastjóri FFGÍR er Ingigerður Sæmundsdóttir, síðan 1.febrúar 2009. Ingibjörg Ólafsdóttir var verkefnastjóri með hléum, frá haustinu 2004. Frá nóv.2006-maí 2007 var Súsanna Fróðadóttir verkefnastjóri. Árið 2003-2004 var Helga Margrét Guðmundsdóttir verkefnastjóri. Helga Margrét var ein af helstu frumkvöðlum í foreldrastarfi í Reykjanesbæ um áraraðir. Hún er verkefnastjóri hjá Heimili og skóla.
Hlutverk verkefnastjóra er m.a.
- Framkvæma þau verk sem stjórn FFGÍR felur honum.
- Undirbúa og boða stjórnarfundi FFGÍR.
- Sitja fundi með foreldrafélögum sé þess óskað.
- Styðja við starf hvers foreldrafélags innan grunnskólanna eftir þörfum hverju sinni, t.d. með upplýsingaöflun og miðlun milli þeirra.
- Sjá um og ritstýra heimasíðu FFGÍR í samráði við stjórn
- Sjá um kynningarmál, miðla upplýsingum um FFGÍR og verkefni á þeirra vegum m.a. með auglýsingum, blaðagreinum, viðtölum og fyrirlestrum
- Efla samvinnu og samstarf við þá sem vinna að forvörnum og foreldrasamstarfi í Reykjanesbæ sem og á landsvísu. Samstarfsaðilar FFGÍR eru lögregla, skólayfirvöld, bæjaryfirvöld, foreldrafélög, trúfélög, íþrótta-og tómstundafélög og klúbba.
- Halda utan um fjármál FFGÍR í samráði við stjórn.
- Sjá um fjármögnun til FFGÍR, með því að afla styrkja frá hinu opinbera, fyrirtækjum eða einstaklingum, eftir því sem þurfa þykir hverju sinni.
- Vera fulltrúi FFGÍR í fulltrúaráði Heimilis og skóla,-landssamtaka foreldra.
FFGÍR á rætur að rekja til forvarnarverkefnisins ,,Reykjanesbær á réttu róli" á vegum Íþróttabandalags Reykjanesbæjar. Það hófst árið 1998 og í kjölfar þess fóru foreldrafélafélögin að vinna meira og skipulegar saman en áður.