Hefur þú hrósað barninu þínu í dag?
Útvistartími

12 ára og yngri- mega ekki vera á almannafæri nema í fylgd með fullorðnum eftir kl. 20 á veturna.

 

13 - 16 ára mega ekki vera á almannafæri eftir kl. 22 á veturna nema á heimleið frá skóla-, íþrótta- eða æskulýðs- samkomu. Útvistartíminn lengist um tvær stundir á sumrin. (1.maí - 1.sept.)

Hlutverk bekkjarfulltrúa er að auka samstarf foreldra, kennara og nemenda innan hvers bekkjar. Bekkjarfulltrúi stuðlar að samskiptum og kynnum innan foreldrahópsins og er málsvari barnanna. Bekkjarfulltrúar styðja við skólastarfið og dreifa verkefnum meðal foreldra.  Verkefnin geta verið um félagsstarf bekkjarins,vinahópa eða hvað sem hópurinn vill gera til að stuðla að góðum starfs- og félagsumhverfi barnanna.

Æskilegt er að bekkjarfulltrúar séu minnst tveir fyrir hvern bekk og að einungis sé skipt um annan bekkjarfulltrúann í hvert sinn, þannig að þeir sitji tvö ár í senn. Þó kennarar hafi frumkvæði að velja bekkjarfulltrúar til starfa, þá starfa þeir í umboði foreldra bekkjarins og á vegum foreldrafélags skólans. Foreldrafélagið starfar sem bakhjarl og stuðningur við bekkjarfulltrúa.

Skilningur, samskipti og stuðningur kennara er frumforsenda þess að bekkjarfulltrúastarf verði að veruleika. Bekkjarsamkomur er barnaskemmtun sem er sameiginleg ábyrgð allra foreldra og bekkjarfulltrúa.

 

Bekkjarfulltrúar og stjórnir Foreldrafélaganna í Reykjanesbæ:

2010-2011

ER Í VINNSLU 25.ÁGÚST 2011 !


Hlutverki bekkjarfulltrúa. Tekið af heimasíðu Heimilis og skóla. Hlutverk bekkjarfulltrúans mótast að nokkru af hugviti hvers og eins.

En hvað gera bekkjarfulltrúar fyrir sinn eigin bekk?

  • bekkjarkvöld tvisvar á ári, leikir, bingó, söngur, föndur osfrv.
  • skipuleggja útiferðir s.s. gönguferðir, grillhátíð, fuglaskoðun, fjöruferð, hjólreiðar eða vorferð.
  • skipuleggja leikhúsferð, bókakynningu, kynning nemenda á umfangsmiklum verkefnum, leiksýningar nemenda.

Mest er um vert að foreldrar hittist og kynnist innbyrðis. Foreldrar fylgja börnunum á skemmtanir eða uppákomur eða hittast án barnanna og ræða  t.d. einelti, gsm notkun, tölvunotkun, útivistarreglurnar eða hvað sem er. Samtakamáttur, stuðningur og forvarnargildi eru fyrir allan bekkinn, líka börn þeirra foreldra sem ekki mæta!  Einnig er mælt með því að foreldrar útbúi með sér foreldrasamning og ræða það á bekkjarfundum.
Hlutverk bekkjarfulltrúa breytist með auknum aldri og þroska nemendanna. Það er þó ljóst að hlutverk bekkjarfulltrúa er þýðingarmikið en jafnframt gefandi og þroskandi fyrir þann sem tekur það að sér.

FFGÍR hvetur alla foreldra til að bjóða sig fram í starf bekkjarfulltrúa.

Um foreldrasamninga:

 

FFGÍR-Félag foreldrafélaga grunnskólanna í Reykjanesbæ | www.ffgir.is | ffgir@ffgir.is