Hefur þú hrósað barninu þínu í dag?
Útvistartími

12 ára og yngri- mega ekki vera á almannafæri nema í fylgd með fullorðnum eftir kl. 20 á veturna.

 

13 - 16 ára mega ekki vera á almannafæri eftir kl. 22 á veturna nema á heimleið frá skóla-, íþrótta- eða æskulýðs- samkomu. Útvistartíminn lengist um tvær stundir á sumrin. (1.maí - 1.sept.)

Hlutverk foreldrafélaga:

  • upplýsingamiðlun og fræðslustarf
  • stuðningur við skólastarfið
  • efla tengsl heimila og skóla, samstarf og tengsl foreldra innbyrðis

Skilgreina má foreldrafélög sem skólamálafélög, og einnig sem uppeldis-eða barnaræktarfélög.

Foreldrar eru félagsmenn í foreldrafélagi þann tíma sem þeir eiga börn í grunnskóla.

Eitt af meginhlutverkum foreldrafélaga er að hafa umsjón með bekkjarfulltrúum, veita þeim stuðning og handleiðslu.

Bæklingur Heimilis og skóla: Stjórn og rekstur foreldrafélaga.

 

Stjórni foreldrafélaganna 2011-2012

ER í vinnslu !

FFGÍR-Félag foreldrafélaga grunnskólanna í Reykjanesbæ | www.ffgir.is | ffgir@ffgir.is