Hefur þú hrósað barninu þínu í dag?
Útvistartími

12 ára og yngri- mega ekki vera á almannafæri nema í fylgd með fullorðnum eftir kl. 20 á veturna.

 

13 - 16 ára mega ekki vera á almannafæri eftir kl. 22 á veturna nema á heimleið frá skóla-, íþrótta- eða æskulýðs- samkomu. Útvistartíminn lengist um tvær stundir á sumrin. (1.maí - 1.sept.)

Ný menntalög gera ráð fyrir að skólaráð starfi við alla grunnskóla og foreldraráð við framhaldsskóla og leikskóla. Skóla- og foreldraráð eru mikilvægur lögboðinn vettvangur foreldra til að koma skoðunum sínum á skólastarfi á framfæri við skólastjórnendur og því skiptir miklu að vel sé að þeim staðið og að þau taki til starfa strax í skólabyrjun. Á heimasíðu Heimilis og skóla er að finna ýmsar upplýsingar hvað þetta varðar. Má þar nefna reglugerð um skólaráð við grunnskóla, dæmi um starfsreglur og fleira.

Hægt er að leita til FFGÍR ef fólk vill formgera erindi til skólaráðs.

 

FFGÍR-Félag foreldrafélaga grunnskólanna í Reykjanesbæ | www.ffgir.is | ffgir@ffgir.is