Hefur þú hrósað barninu þínu í dag?
Útvistartími

12 ára og yngri- mega ekki vera á almannafæri nema í fylgd með fullorðnum eftir kl. 20 á veturna.

 

13 - 16 ára mega ekki vera á almannafæri eftir kl. 22 á veturna nema á heimleið frá skóla-, íþrótta- eða æskulýðs- samkomu. Útvistartíminn lengist um tvær stundir á sumrin. (1.maí - 1.sept.)

Örugg netnotkun barna
-fræðsla fyrir foreldra-


Börnin okkar alast upp í miklu tæknivæddari heimi en við sjálf gerðum. Tilkoma hinna nýju miðla, Internets og GSM, hefur bætt nýrri vídd við veruleika barna okkar. Sýndarveruleikinn er því stór hluti þess heims sem börn okkar alast upp í, allt frá fyrstu bekkjum grunnskóla. Þessi nýju miðlar hafa sínar góðu og slæmu hliðar og nauðsynlegt er að kenna börnum að fóta sig á Netinu. Margir foreldrar finna samt til vanmáttar gagnvart allri þeirri nýju tækni, sem börnin virðast yfirleitt hafa betri tök á en fullorðna fólkið. En við getum ekki skorast undan ábyrgð. Börn þurfa leiðsögn, einkum er varðar góða umgengni, samskiptareglur og að forðast hættur sem leynast víða á Netinu. Foreldrar geta lært betur á tæknina og þannig notið betur með börnum sínum þess skemmtilega og góða sem Netheimar bjóða upp á.

Á næstunni, eða frá og með 20.febrúar nk. Verður börnum í  4. og 6. bekk og foreldrum þeirra í öllum grunnskólum Reykjanesbæjar, boðið á morgunfundi í sínum skóla. Þar verður farið yfir ýmsa þætti öruggrar netnotkunar. Munu Hafþór Birgisson, forstöðumaður Fjörheima og 88-Hússins, og Kristján Freyr Geirsson lögreglumaður, stjórna þeim fundum. Í framhaldinu verður boðað til kvöldfundar þar sem áhugasömum foreldrum boðið upp á frekari stuðning og kennslu í að halda utan um tölvunotkun barna sinna.

Skv. eigin reynslu og fjölmörgum samtölum við foreldra, þá eru langflestir foreldrar að kljást við ýmis mál sem tengjast tölvunotkun á sínum heimili. Allt of oft eru dæmi um vanmátt, togstreitu og jafnvel átök milli foreldra og barna vegna þessa. Leiðsögn okkar til barnanna er nauðsynlegur hluti af uppeldinu. Því hvet ég alla foreldra til að grípa þetta tækifæri til fræðslu og stuðnings, og taka þátt þegar þeim berst boð á slíkan fund.

Með kærri kveðju,
f.h. FFGÍR-Foreldrafélög og foreldraráð grunnskólanna í Reykjanesbæ
Ingibjörg Ólafsdóttir

FFGÍR-Félag foreldrafélaga grunnskólanna í Reykjanesbæ | www.ffgir.is | ffgir@ffgir.is