Hefur þú hrósað barninu þínu í dag?
Útvistartími

12 ára og yngri- mega ekki vera á almannafæri nema í fylgd með fullorðnum eftir kl. 20 á veturna.

 

13 - 16 ára mega ekki vera á almannafæri eftir kl. 22 á veturna nema á heimleið frá skóla-, íþrótta- eða æskulýðs- samkomu. Útvistartíminn lengist um tvær stundir á sumrin. (1.maí - 1.sept.)

Vinnuhópur um eflingu bekkjarfulltrúastarfs

Í framhaldi af málþingi sem undirbúningshópur foreldra, kennara og skólastjórnenda stóð að í sept. 2005 undir yfirskriftinni “Með foreldrum til framfara” óskaði FFGÍR haustið 2006 við að setja á fót samstarfshóp skóla og heimila, með tilnefningu stjórnarmanna úr foreldrafélögum og skólum í þann hóp.

Eins og niðurstöður ofangreinds málþingsins segja:

  • Rannsóknir sýna að áhugi og þátttaka foreldra er stærsti áhrifavaldurinn í námsárangri, lykill að framförum í námsárangri barna liggur í gegnum aukið samstarf, jákvæð samskipti, traust og virðingu heimila og skóla.
  • Nauðsyn er á að efla tengslanet foreldra, sem og gagnkvæm og jákvæð samskipti heimila og skóla, í báðar áttir. Kennari gegnir lykilhlutverki, sem og viðhorf skólastjóra og foreldrar þurfa að eiga meira frumkvæði að samskiptum.
  • Til að efla tenglsanet foreldra, og auka hlut foreldra í námi barna sinna gegnir bekkjarfulltrúi mikilvægu hlutverki sem tengiliður foreldra. Þar sem tenglsanet foreldra er þétt=meiri námsárangur, líka meðal þeirra sem fallan utan tenglsanetsins.
  • Lagt er því til að vinna sé hafin á því að endurskilgreina og innleiða annað og endurbætt hlutverk bekkjarfulltrúa innan grunnskóla Reykjanesbæjar, sem fram að þessu hefur mikið einkennst af skemmtanaumsjón og gagnast lítið foreldrum né kennurum til að styðja við nám barnanna. 

Markmið og fyrirkomulag:

Þessi starfshópur átti að vinnna að því að styrkja hlutverk og starf bekkjarfulltrúa í grunnskólum Reykjanesbæjar t.d. með breyttri verkefnalýsingu og þjálfun til bekkjarfulltrúa og kennara eða hverju því sem hópurinn myndi sjálfur ákveða að gera sem samræmist ofangreindu markmiði. Hópurinn ákvað að gera könnun meðal foreldra um viðhorf þeirra og reynslu til samstarfs heimila og skóla, og starfs bekkjarfulltrúa. Þessi könnun er ekki nothæf til að vinna úr tölfræðilega þar sem um niðurstöður úr þrem skólum var að ræða, og oft voru fleiri en einn kennari á bak við hvert svar, en niðurstöður sýndu þó ýmsar vísbendingar og gáfu hugmyndir um framhaldið. Í kjölfarið lauk hópurinn formlega störfum en FFGÍR mun fylgja þessu starfi eftir við eflingu bekkjarfulltrúastarfs. Sjá fundargerðir að neðan.

FFGÍR-Félag foreldrafélaga grunnskólanna í Reykjanesbæ | www.ffgir.is | ffgir@ffgir.is