Hefur þú hrósað barninu þínu í dag?
Útvistartími

12 ára og yngri- mega ekki vera á almannafæri nema í fylgd með fullorðnum eftir kl. 20 á veturna.

 

13 - 16 ára mega ekki vera á almannafæri eftir kl. 22 á veturna nema á heimleið frá skóla-, íþrótta- eða æskulýðs- samkomu. Útvistartíminn lengist um tvær stundir á sumrin. (1.maí - 1.sept.)

Viðhorfskönnun FFGÍR

Foreldraráð FFGÍR stóðu fyrir stuttri viðhorfskönnun meðal foreldra grunnskólabarna í samstarfi við skólana. Könnunin fór fram dagana 23.janúar til 27.febrúar 2006, á foreldradögum skólanna, og voru svör samtals 990. Var könnunin fyllt út skriflega eða rafrænt, eftir því sem skólar vildu sjálfir, en þeim stóð hvort tveggja til boða. Var notað forritið Outcome, sem Reykjanesbær hefur aðgang að, til að vinna úr niðurstöðum.

Spurt var um viðhorf til núverandi fyrirkomulags skólamáltíða, viðhorf til skólabúninga, viðhorf til vetrarfría og viðhorf til heimanáms um helgar.

Meirihluti foreldra grunnskólabarna í Reykjanesbæ sagðist ánægður með fyrirkomulag mötuneyta grunnskóla þótt margt megi bæta og flestir voru jákvæðir í garð skólabúninga.
 
Alls sögðust 53% hafa mjög jákvætt eða frekar jákvætt viðhorf til núverandi fyrirkomulags skólamáltíða, hlutlausir voru 17% og 29% sögðust hafa frekar neikvætt og mjög neikvætt viðhorf. Alls sögðust 59% hafa mjög jákvæðtt eða frekar jákvætt viðhorf til skólabúninga, margir voru hlutlausir eða 23% og 18% sögðust frekar neikvæðir eða mjög neikvæðir.
Viðhorf til vetrarfría var frekar jákvætt eða 65%, hlutlausir voru 15% og neikvæðir 19%
Meirihluti foreldra hafði frekar eða mjög neikvætt viðhorf til heimanáms um helgar eða 52%, hlutlausir voru 17% og fylgjandi heimanámi um helgar voru 31.

FFGÍR-Félag foreldrafélaga grunnskólanna í Reykjanesbæ | www.ffgir.is | ffgir@ffgir.is